
Drengirnir eru hressir að vanda og sá stærri er farinn að hlakka mikið til páskanna. Hann er nú þegar komin með 2 egg upp í skáp, fær eitt frá foreldrunum og svo komu Steinunn amma og Siggi afi með Marsbúaegg handa gaurnum í gær...svo það er komið súkkulaðiblik í brúnu augun ;) Helgin okkar var ansi góð, byrjuðum hana á að fara í bíó með Stínu, Emblu Ýr og Höskuldi Ægi og sáum Monsters vs. Aliens...mælum sko með henni! Á laugardaginn komu Óli og Þórunn og Stína, Mummi og Embla Ýr í mat til okkar og fullorðna fólkið spilaði á meðan Elvar og Embla höfðu það kósí með snakk, nammi og mynd. Svo fékk Embla Ýr að gista...fínt að hafa lausa koju til að bjóða gestum :) Elvar Orri er nefnilega kominn með þessar líka fínu kojur í herbergið sitt. Á sunnudaginn fengum við líka fína gesti. Siggi afi, Steinunn amma, Árni og Giada, Hildur og strákarnir komu í sunnudagskaffi til okkar. Elvari finnst nú ekki leiðinlegt að hafa stóru frændurna hjá sér og tókst að fá þá með sér út í fótbolta.
Elvar Orri gerir sitt besta þessa dagana til að sofa í nýju kojunum. Hann er voðalega ánægður með þær og finnst mikið sport að sofa í efri kojunni. Múttunni fannst svoldið erfitt að hafa hann svona hátt uppi fyrstu nóttina og var alltaf að kíkja á hann en hann fer varlega. Eitt kvöldið bað hann þó um að sofa í neðri kojunni og þegar mútta kíkti á hann rétt fyrir miðnætti lá hann á gólfinu...þannig að hann dettur ekki úr efri kojunni, bara þeirri neðri ;) Honum gengur svona upp og ofan að sofa í sínu bæli alla nóttina...það er bara svo gott að koma upp í og kúra ;)

Litli snúðurinn er nú ekkert að pæla í páskum né súkkulaðiáti. Foreldrarnir eru nú svo leiðinlegir að ætla ekkert að kynna hann fyrir páskaeggjum þetta árið :) Hann skellti sér svo í 18 mánaða skoðunina fyrir helgi og stóð sig vel...grét nú samt aðeins þegar læknirinn og hjúkkan fóru að kíkja á hann og varð ægilega sár þegar sprautan kom en niðurstaðan er þessi: snáðinn er 77,3 cm langur og 9,53 kg að þyngd. Þannig að eitthvað hefur tognað á honum og þyngst í honum síðan hann kom heim :)
Segjum það gott í bili, farið varlega í páskaeggin :)
2 ummæli:
Hæ, þetta eru flottar myndir af bræðrunum.Kveðja amma í Sporða.
Gaman að lesa ykkar sögur alltaf :-) já hún Harpa Rós fær ekki að kynnast alvöru páskaeggjum þetta árið heldur.. þau vita ekkert hvað þetta er þannig að það er eins gott að leyfa þeim ekki að smakka strax ;-)
Sætir snúðar sem þið eigið*** við sjáumst fljótlega..
knúsknús, Hrefna og mosógengið*
Skrifa ummæli